Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði:

Sönghópurinn er löngu orðinn rótgróinn hluti af Skagfirsku samfélagi og hefur um árabil stigið á stokk og skemmt ungum sem öldnum með fallegum söng blönduðu vingjarnlegu andrúmslofti. Sönghópurinn kemur saman frá hausti hvern miðvikudag yfir vetrartímann, æfir og heldur nokkra tónleika á ári hverju.

Stjórn sönghóps FEBS og stjórnandi í júní 2024:

Ragnheiður Guðmundsdóttir, formaður
Steinunn Arnljótsdóttir, varaformaður
Ásta Pálína Ragnarsdóttir, ritari
Valgeir Kárason, gjaldkeri
Gunnhildur Vilhjálmsdóttir, meðstjórnandi

Söngstjóri er Rögnvaldur Valbergsson

Söngæfingar frá hausti 2024 eru á miðvikudögum frá kl 15:00 til 17:00  í Ljósheimum