Afhent gjafarbréf til kaupa á nýjum líkbíl.
Á aðalfundi félagsins þann 18. mars 2021 var einróma samþykkt að gefa peninga í söfnun fyrir nýjum líkbíl hér á Sauðárkróki.
Hér er Stefán A. Steingrímsson, formaður FEBS, í haust, að færa formanni Sóknarnefndar, Ingimari Jóhannssyni, gjafarbréf að upphæð kr. 500.000,- frá félaginu.
Borgarfjarðarferð F.E.B.S. 3.- 5. júní 2021.
Tuttugu og einn pantaði í ferðina, en þrír boðuðu forföll, þannig að útkoman varð átján manns. Lagt var af stað klukkan 9:30 þann þriðja júní og var Gísli Rúnar bílstjóri. Glampandi sól var norðan heiða en úr því þungskýjað og skúrir. Eftir smástopp í Staðarskála var stefnan tekin á Hraunsnef, þar sem beið okkar kjúklingasúpa. Eftir að hafa gert henni skil var ekið að Baulu, þar sem Bjarni Guðmundsson f.v. kennari á Hvanneyri kom um borð sem leiðsögumaður. Undir hans leiðsögn var farið um Stafholtstungur, fram Hvítársíðu að Hraunfossum og Barnafossi. Þaðan niður Hálsasveit og yfir í Reykholtsdal – aðeins komið við í Reykholti, en ekki farið út úr bíl þar. Fórum við svo niður Bæjarsveit og að Hvanneyri, þar sem við skoðuðum Ullarsetrið, Búvélasafnið og kirkjuna. Bjarni sagði okkur sögu hennar, en hún var byggð 1905 eftir að sú gamla fauk. Við skiluðum Bjarna til síns heima eftir frábæran dag. Svo ókum við sem leið liggur að Hótel Laxárbakka í Leirársveit. Fengum við þar herbergjum úthlutað og síðan var kvöldverður klukkan sjö. Fengum við fyrirtaks rjómalagaða aspassúpu og pönnusteikta löngu ásamt nógu af grænmeti með. Alveg fyrirtaks matur. Síðan var setið og spjallað um stund, en flestir gengu snemma til náða.
Föstudagurinn fjórði júní: Veður var mjög blítt – sólarlaust en hlýtt og smávegis rigning. Bjarni leiðsögumaður mættur fyrir allar aldir og lagt af stað á mínútunni. Nú vildi Bjarni byrja á að fara niður á Akranes, þar sem hann sagði okkur frá ýmsu, svo sem böllunum á hótelinu í den. Gengið var út að vitanum. Við sáum þarna kútter Sigurfara og sitthvað fleira. Eftir Akranesrúntinn var farið sem leið liggur fram hjá Hvalfjarðargöngunum og hótelinu og veitingastaðnum Laxárbakka og upp í Leirársveit og Svínadal, yfir Ferstikluháls og niður að Hlöðum á Hvalfjarðarströnd. Þar skoðuðum við Stríðsminjasafnið hans Gauja litla. Mögnuð upplifun það! Því næst komum við að Hótel Glym, þar sem við snæddum afbragðs villisveppasúpu. Að því loknu héldum við inn Hvalfjörð og keyrðum inn í Brynjudal. Síðan var farið yfir í Kjós, þar sem við töfðum góða stund á Kaffi Kjós við Meðalfellsvatn, svo ókum við upp fyrir Miðfell og niður Miðdal, þaðan sem leið liggur að Hvalfjarðargöngum. Komum við að Laxárbakka klukkan fimm, þar sem við kvöddum okkar frábæra leiðsögumann. Klukkan sjö var svo kvöldmatur – dýrindis lambakjöt og meðlæti og frönsk súkkulaðikaka á eftir. Setið var um stund og sungið. Ásta Ragnarsdóttir fékk lánaðan gítar.
Á laugardagsmorguninn var sæmilegasta veður – skýjað en að mestu leyti þurrt. Við fórum frá Laxárbakka – þeim frábæra gististað klukkan tíu. Ég náði sambandi við Víðigerði í Víðidal og pantaði kjötsúpu handa okkur, er við kæmum þangað. Við keyrðum Melasveitarhringinn, tókum einn rúnt um Borgarnes, en ókum svo beint í Staðarskála, þar sem tekið var stutt pissustopp. Ásta Ragnarsdóttir tók nú að sér leiðsögn, þar sem við nálguðumst æskuslóðir hennar. Fórum við fram í Miðfjörð að vestan og austur yfir brú hjá Haugi, en aðeins norðan við Bjarg tókum við hægri beygju og ókum yfir í Fitjárdal og ókum norður hann. Komum klukkan rúmlega eitt í Víðigerði, þar sem kjötsúpa hafði breyst í aspassúpu, en hún var ágæt. Ingunn Sigurðardóttir tók að sér leiðsögn það sem eftir var af leiðinni. Komum á Krókinn klukkan rúmlega fimm. Þá var þessari bráðskemmtilegu ferð lokið.
Þórey Helgadóttir
Úrdráttur úr fundargerð aðalfundar F.E.B.S. 18. mars 2021.
Aðalfundur FEBS var haldinn í Húsi frítímans þann 18. mars 2021. Mættir voru 46 félagar. Stefán A. Steingrímsson, starfandi formaður, setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Skipaði hann Birgittu Pálsdóttur sem fundarstjóra. Tók hún við stjórn og minnti fólk á sóttvarnir og lét blað ganga meðal fundargesta til að skrá nafn, kennitölu og símanúmer vegna smitrakningar. Þá gaf hún Stefáni starfandi formanni orðið sem minntist látinna félaga og las upp nöfn þeirra. Í minningu Helgu Sigurbjörnsdóttur, formanns, fór hann nokkrum orðum um æviágrip hennar og þakkaði hennar störf í þágu félagsins. Þá las Stefán upp skýrslu stjórnar, en vegna covid lá starfsemin að mestu niðri vegna samkomutakmarkana. Á stjórnarfundi 17. september 2020 var ákveðið að starfið gæti farið að hefjast aftur, boccia og leikfimi fór af stað og var jólafundur ákveðinn 17. desember. En 21. september voru covid smit aftur að aukast í samfélaginu og reglur hertar. Svo ákveðið var að bíða. Ósk kom frá fjölskyldu Helgu Sigurbjörnsdóttur að blómagjöf vegna jarðarfarar hennar yrði greidd í minningarsjóð Sigurlaugar frá Ási. Gott samstarf var við nýjan yfirmann í Húsi frítímans, Sigríði Ingu Viggósdóttur og þakkað fyrir það. Hefðbundið starf hófst svo aftur eftir áramót, þann 15. janúar. Sú nýjung var að boðið var upp á tölvukennslu hjá starfsfólki Húss frítímans og mæltist það vel fyrir. Helga Bjarnadóttir hélt utanum Löngumýrarstarfsemina og opið hús í Húsi frítímans var bætt við á föstudagsmorgnana. Þá var haldið námskeið í tréútskurði og voru 10 þátttakendur. Styrk frá Þróunarsjóði var lítið hægt að nota vegna covid. Félagar eru nú 293. Starfandi formaður þakkaði fundarmönnum og starfsfólki Húss frítímans fyrir gott samstarf. Kristín Björg Helgadóttir, ritari, las fundargerð síðasta aðalfundar og var hún samþykkt. Steinunn Hjartardóttir, gjaldkeri, gerði grein fyrir reikningum félagsins og bar þá undir fund og voru þeir samþykktir. Fyrir hönd ferðanefndar sagði Magnús Óskarsson frá öllu sem ekki var gert og hugmyndum af t.d. leiksýningu í vor. Símon Traustason sagði frá fyrirhugaðri ferð í Borgarfjörðinn snemma sumars og lagði fram könnunarlista um þátttöku. Ásta Pálína Ragnarsdóttir sagði frá íþróttanefnd, 14-17 mæta að jafnaði í leikfimi og í Boccia mæta að jafnaði 18-20, en þar eru 25 skráðir félagar. Pílukast er einu sinni í viku og er lítil þátttaka þar. Sönghópurinn hefur ekki haft neina starfsemi á þessum vetri og sagði formaðurinn, Snæbjörn Guðbjartsson, að farið yrði af stað af krafti í haust og alltaf vantaði nýja félaga. Ákveðið var að hækka kaffigjaldið úr kr. 300 í kr. 500 og gefur Sveitarfélagið áfram kaffiduftið. Í önnur mál tók til máls Birgitta Pálsdóttir, ekki sem fundarstjóri heldur sem almennur fundarmaður og þakkar stjórninni fyrir þeirra störf á erfiðum tímum. Hún leggur til að félagið gefi peninga í söfnun Safnaðarins fyrir nýjum líkbíl. Hafði Símon Traustason einnig talað fyrir þessum lið í sinni tölu. Var það samþykkt samhljóða. Þá var kynnt ný stjórn sem samþykkt var samhljóða. Formaður: Stefán Arnar Steingrímsson, varaformaður: Ingunn Á. Sigurðardóttir, gjaldkeri: Steinunn Hjartardóttir, ritari: Ásta Pálína Ragnarsdóttir, meðstjórnandi: Guðmundur Gunnarsson, varamenn: Ásta Kristín Sigurbjörnsdóttir, Sigurður Björnsson og Magnús Óskarsson. Þá var skipað í nefndir félagsins. Íþróttanefnd: Ásta Pálína Ragnarsdóttir, Guðmundur Gunnarsson og Gunnhildur Vilhjálmsdóttir. Ferðanefnd: Magnús Óskarsson, Þórey Helgadóttir og Símon Traustason. Til vara Kristín B. Sveinsdóttir. Skoðunarmenn reikninga: Elín Sigurðardóttir og Gestur Þorsteinsson. Til vara Engilráð M. Sigurðardóttir. Fulltrúar í öldungaráði félags okkar eru: Stefán Steingrímsson, Örn Þórarinsson og Svala Gísladóttir. Til vara Ágústa Eiríksdóttir, Helena Svavarsdóttir og Gestur Þorsteinsson. Sönghópurinn er með sína eigin stjórn. Þá þakkaði fundarstjóri fyrir góðan fund og nýkjörinn formaður þakkaði fundargestum og vonar að félagið styrkist áfram. Starfsfólki í Húsi frítímans þakkað fyrir einstaklega góða samvinnu og lipurð og eiga hrós skilið. Fundi slitið.
Starfsemi í Húsi frítímans.
Góðir félagar, þá hefur Hús frítímans verið opnað aftur fyrir allri starfsemi. Förum samt varlega og gætum vel að öllum sóttvörnum.
Skemmtiferð í Borgarfjörð 3.-5. júní 2021
Ferðanefnd félags eldri borgara í Skagafirði auglýsir skemmtiferð í Borgarfjörð dagana 3. – 5. júní n. k. Áætlaður heildarkostnaður á mann er kr. 40.000. Innifalið í verðinu eru gisting í tvær nætur, tveir morgunverðir, tveir kvöldverðir og leiðsögn auk aksturs, sem greiddur er úr sameiginlegum sjóði. Ferðaglaðir ákveði sig sem allra fyrst eða í síðasta lagi fyrir föstudaginn 14. maí n.k. Hámarks fjöldi þátttakanda er 35 manns. Ferðin er háð því, að hún standist lög og reglugerðir um sóttvarnir. Þátttökugjald greiðist á reikning nr. 310 – 26 – 002105, kt. 5601983109 í Arion banka. Væntanlegir þátttakendur skrái sig hjá Kristínu Bjarneyju Sveinsdóttur í síma 8684443, Þóreyju Helgadóttur í 4538078, Símoni Traustasyni í 8932339 og Magnúsi Óskarssyni í 453 5368.
F.h. Ferðanefndar Magnús Óskarsson