Jólafundurinn 12. desember 2022
Gott að eldast
Vildi vekja athygli á eftirfarandi:
Í gær, mánudag 5. desember, var haldinn kynningarfundur um aðgerðaráætlun á þjónustu við eldra fólk. Fjölmargir mættu á kynninguna og eins voru margir sem fylgdust með á streymi.
Á vef stjórnarráðsins er að finna frekari upplýsingar ásamt upptöku af fundinum. Sjá nánar hér: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2022/12/05/Gott-ad-eldast-adgerdaaaetlun-um-thjonustu-vid-eldra-folk/
Verkefnið hefur hlotið heitið Gott að eldast
Aðdragandi og stofnun félagsins og starfsemin í 30 ár.
Aðdragandi og stofnun félagsins og starfsemin í 30 ár.
Það var snemma vors árið 1992, nánar tiltekið 4. maí, sem boðað var til almenns borgarafundar á Sauðárkróki. Efni fundarins var stofnun félags eldri borgara á Sauðárkróki. Á þeim fundi var kosin undirbúningsnefnd þar sem Ingvar Gýgjar Jónsson var kosinn formaður ásamt þeim Sæmundi Hermannssyni og Halldóri Þ. Jónssyni.
Stofnfundur félagsins var svo haldinn í Safnahúsinu 29. september 1992.
Ingvar Gýgjar setti fundinn, fundarstjóri kosinn Halldór Þ. Jónsson og ritari Rögnvaldur Gíslason. Ingvar Gýgjar greindi frá störfum nefndarinnar. 75 manns höfðu þegar skráð sig sem stofnfélaga. Þá voru lögð fram og samþykkt lög fyrir félagið í mörgum köflum og ótal liðum.
Áður mun hafa starfað undirbúningsnefnd. Óvíst hverjir voru í henni.
Stjórn félagsins:
Í fyrstu stjórn félagsins voru kosnir:
Sæmundur Hermannsson, formaður.
Sigurlaug Gunnarsdóttir,
Sigmundur Pálsson,
Kári Steinsson,
María Hansen.
Varastjórn:
María Sveinsdóttir,
Þóra Friðjónsdóttir,
Friðrik J. Friðriksson.
Endurskoðendur:
Rögnvaldur Gíslason,
Erla Einarsdóttir.
Nefndir og starfshópar:
Á fundi 13.nóvember 1992 skipaðar: Bygginganefnd, fjáröflunarnefnd, félagsmálanefnd, ferðanefnd og húsnefnd. Árgjald var í byrjun 1000.-kr.
Aðstaða F.E.B.S. var fyrstu 8 árin á Sjúkrahúsinu, í félagsaðstöðunni niðri. Sjúkrahúsið mun hafa séð um veitingar, en félagið fært þeim ýmsa eldhúsmuni í staðinn.
18.febrúar 1999 flyst starfsemi F.E.B.S. í Félagsheimilið Ljósheima og er þar fram að áramótum 2008-2009. 2.febrúar er flutt í ,,Hús frítímans“
LOGO félagsins er hannað af Guðmundi Márussyni
Formenn frá stofnun félagsins:
Sæmundur Hermannsson 1992 – 1996
Fjóla Þorleifsdóttir 1996 – 2000
Guðmundur Márusson 2000 – 2005
Helga Bjarnadóttir 2005 – 2008
Guðmundur Márusson 2008 – 2010
Inga Valdís Tómasdóttir 2010 – 2015
Birgitta Pálsdóttir 2015 – 2019
Helga Sigurbjörnsdóttir 2019 – 2021
Stefán Arnar Steingrímsson 2021 – 2023
Stjórn FEBS 2022-2023:
Formaður: Stefán Arnar Steingrímsson
Varaformaður: Ingunn Ásdís Sigurðardóttir
Ritari: Ásta Pálína Ragnarsdóttir
Gjaldkeri: Steinunn Hjartardóttir
Meðstjórnandi: Ásta Kristín Sigurbjörnsdóttir
Varamenn: Magnús Óskarsson, Björn Björnsson og Stefanía Stefánsdóttir
Eru félagar í FEBS núna í október 2022 um 350 manns.
Sönghópurinn:
Árið 1995 kom hugmynd frá Kára Steinssyni um að stofna ,,Sönghóp eldri borgara“. Varð hann síðan formlega stofnaður 22. mars 1996 og varð það og er merkur þáttur í starfi eldri borgara. Varð Kári Steinsson jafnframt fyrsti formaður.
Logo félags eldri borgara, sem hannað var af Guðmundi Márussyni, var staðfært að Sönghópnum sem eigið lógó.
Formenn sönghópsins frá stofnun:
Kári Steinsson 1996 – 1997
Árni Blöndal 1997 – 2006
Sigurlaug G. Gunnarsdóttir 2006 – 2009
Jóhanna Jónasdóttir 2009 – 2011
Þorbergur Skagfjörð Jósepsson 2011 – 2013
Þorbjörg E. Gísladóttir 2013 – 2016
Snæbjörn Guðbjartsson 2016 – 2022
Ragnheiður Guðmundsdóttir 2022 -2024
Kórstjórn og stjórnandi 2022-2023:
Formaður kórstjórnar er Ragnheiður Guðmundsdóttir, varaformaður Magnús Sverrisson, gjaldkeri Þórey Helgadóttir og ritari Ásta Pálína Ragnarsdóttir.
Meðstjórnandi er Valgeir Kárason.
Kórstjórnandi er Rögnvaldur Valbergsson.
Núna í október árið 2022 eru skráðir félagar í Sönghópnum um 38 og meðalmæting á æfingar 28-30.
Breytingar á lögum félagsins.
Félagið hét í upphafi Félag eldri borgara á Sauðárkróki. Breytt í Félag eldri borgara í Skagafirði á aðalfundi 23.maí 1993, skammstafað F.E.B.S. Einnig að kosið skyldi á aðalfundi í stjórn nokkurra nefnda. Á aðalfundum 17. apríl 1997 og 12. apríl 1999 voru gerðar lagfæringar á lögunum og nefndum fækkað og á aðalfundi 15. apríl 2002 voru felld út tímatakmörk á setu í stjórn.
Þannig að að nú er aðeins kosið í tvær nefndir, Ferðanefnd og Íþróttanefnd.
Á aðalfundi 14.03.2022 voru svo lög félagsins endurskoðuð og ýmsu breytt og lagfært til að mæta tækni nútímans. Var það frekar orðalag heldur en breyting á lögunum sjálfum. Aðeins var tekið út úr 1. kafla 2. greinar b. lið hvað varðaði byggingu þjónustuíbúða aldraðra í Skagafirði.
Starfsemin:
Dagskrá: Dagskrá hvers starfsárs er ákveðin að hausti. Send er út auglýsing í Sjónhorninu í byrjun sept. hvert ár með dagskrá til áramóta og aftur er auglýst um áramót þar sem dagskrá til vors er kynnt.
Umsjónaraðilarnir með starfseminni á Löngumýri auglýsa sömuleiðis og Hofsósingar auglýsa sína starfsemi.
Félagsgjald: Er nú í október 2022 kr. 3000.-
Stuðningsaðilar:
Árið 2007 gaf Kaupfélag Skagfirðinga kr. 10.000.000.- milljónir til uppbyggingar á félags og tómstundaaðstöðu fyrir eldri borgara í Skagafirði. 6 milljónum hefur verið varið í hús- og eldhúsbúnað í Hús frítímans. 4 milljónir stóðu þá eftir og hafa verið nýttar til að kaupa ýmsan búnað fyrir félagsstarfsemina. Einnig hafa Kaupfélag Skagfirðinga, SSNV, Arion banki, Skagafjörður og Akrahreppur stutt rekstur félagsins fjárhagslega. Þá hafa félaginu borist góðar gjafir bæði frá fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum og ber að þakka það.
Þá ber ekki síst að nefna það að Sveitarfélagið Skagafjörður gerði samstarfssamning við Félag eldri borgara í Skagafirði til tveggja ára þann 7. nóvember 2019 sem var svo endurnýjaður 29. september 2021, aftur til tveggja ára. Með þessum samstarfssamningi veitir Sveitarfélagið FEBS fjárhagsstuðning vegna starfseminnar hér á Sauðárkróki, á Löngumýri og Hofsósi. Má þar meðal annars nefna að félagið hefur aðgang að Húsi Frítímans a.m.k. 14 klukkutíma á viku. Var þessi stuðningur í formi húsaleigu og fleira fyrir árið 2021 samtals kr. 6.175.000.
Lesið á 30 ára afmæli félagsins í Ljósheimum 17. október 2022.
Dagskrá Félags eldri borgara í Skagafirði til áramóta 2022,
Hér má sjá dagskrána okkar til áramóta 2022. Einnig hefur þessi dagskrá
verið færðinn á flipann “dagskrá” sem hægt er að finna með því að færa
músina yfir “starfið” hér efst á síðunni.
Félag eldri borgara í Skagafirði.
Samkomur eldri borgara til áramóta 2022
í Húsi frítímans – hefjast kl. 13.00
September: Kl. 13 – 16
12. mánudagur – Félagsvist
15. fimmtudagur – Spil
19. mánudagur – Bingó
21. fimmtudagur – Spil
26. mánudagur – Félagsvist
29. fimmtudagur – Spil
Október: Kl. 13 – 16
3. mánudagur – Bingó
6. fimmtudagur – Spil
10. mánudagur – Félagsvist
13. fimmtudagur – Spil
17. mánudagur – Haustfundur – 30 ára afmæli
20. fimmtudagur – Spil
24. mánudagur – Félagsvist
27.fimmtudagur – Spil
31. mánudagur – Bingó
Nóvember: Kl. 13 – 16
3. fimmtudagur – Spil
7. mánudagur – Félagsvist
10. fimmtudagur – Spil
14. mánudagur – Bingó
17. fimmtudagur – Spil
21. mánudagur – Félagsvist
24. fimmtudagur – Spil
28. mánudagur – Bingó
Desember: Kl. 13 – 16
1. fimmtudagur – Spil
5. mánudagur – Félagsvist
8. fimmtudagur – Spil
12. mánudagur – Jólafundur
15. fimmtudagur – Bingó
Annað:
Handavinna og föndur: Miðvikudaga í Húsi frítímans kl. 12.00 – 16.00. Jóna og Helga taka vel á móti ykkur. Hefst 28. september.
Leikfimi: Mánudaga og miðvikudaga í Húsi frítímans kl. 10.00 – 11.00. Guðrún Helga þjálfar. Hefst 12. september. Skráið ykkur hjá Ástu R. í síma 862-6167.
Boccia: Þriðjudaga og fimmtudaga í Húsi frítímans kl. 10.00 – 12.00. Hefst 13. september.
Pílukast: Þriðjudaga í Húsi frítímans kl. 10.00 – 12.00.
Jóga: Föstudaga í Húsi frítímans kl. 10.00 – 11.00. Sigríður H. Sveinsdóttir stýrir jóga fyrir 60+. Hefst 16. september. Skráið ykkur hjá Ingunni í síma 863-5245 eða Sigríði í síma 879-7075.
Spjaldtölvu- og snjallsímaleiðsögn: Í Húsi frítímans. Skráning hjá Steinunni í síma 898-6632. Bendum einnig á auglýsingu í Sjónhorninu 31. tbl. 2022 um ókeypis námskeið í tölvu- og miðlalæsi fyrir 60+ í Farskólanum.
Samvera á Löngumýri: Verður auglýst síðar í Sjónhorninu.
Leshópur: Miðvikudaga á Bókasafninu kl. 10.30 – 11.30.
Gönguhópur: Mánudaga og fimmtudaga kl. 11.00. Mæting við Vallarhúsið á íþróttavellinum.
Íþróttahúsið: Á fimmtudögum kl. 12.00 – 13.00. Badminton, ringó, eða önnur hreyfing eftir getu. Áhugasamir hafi samband við Ástu R. í síma 862-6167. Einnig er eldri borgurum heimilt að ganga hringinn uppi í Íþróttahúsinu mánudaga til fimmtudaga kl. 11.20 -12.00.
Kórinn: Æfingar í Ljósheimum á miðvikudögum kl. 15.00 – 17.00. Nýir félagar velkomnir. Upplýsingar veita Ragnheiður í síma 868-1875, Ásta R. í síma 862-6167 og Þórey í síma 895-8078.
Hefst 21. september.
Skákæfingar: Eldri borgarar eru boðnir velkomnir á skákæfingar hjá Skákfélaginu í Safnaðarheimilinu á miðvikudögum kl. 20.00
Útskurður: Í Árskóla (smíðastofu) þriðjudaga kl. 16.00 – 18.00. Uppl. hjá Ástu R. í síma 862-6167.
Dans: Steinunn Arnljótsdóttir verður í Ljósheimum á þriðjudögum kl. 20.00 – 21.00 með línudans og svo strax á eftir, kl. 21.00 – 22.00, með gömlu dansana. Áhugasamir hafi samband við Steinunni í síma 846-9014.
Golf: Eldri borgarar eru boðnir velkomnir til að pútta í Húsi Golfklúbbs Sauðárkróks, Borgarflöt 2, Sauðárkróki, mánudaga og miðvikudaga kl. 10.30 – 12.00. Hefst 3. október. Uppl. hjá Sigurjóni í síma 663-0844
Heimavist FNV: Hádegishlaðborð virka daga, kr. 1.700,-
Mörg fyrirtæki á Sauðárkróki og í Skagafirði veita félögum í FEBS afslátt af veitingum, vörum og þjónustu. Upplýsingar eru í afsláttarbók LEB og í appinu „Torgið“. Munið að spyrja um afsláttinn og sýnið félagsskírteini FEBS.
Öldrunarþjónusta Skagafjarðar: Upplýsingar veitir Stefanía Sif Traustadóttir í síma 455-6000.
Þessi dagskrá er háð þeim sóttvarnarreglum sem í gildi eru á hverjum tíma. Við erum öll almannavarnir!! ATH: Bílastæði eru einnig austan við Hús frítímans – þá er ekið inn á planið sjávarmegin. Geymið auglýsinguna!! 😊 Allir eldri borgarar eru velkomnir í Hús frítímans.
Minnum á heimasíðuna okkar: febskagafirdi.is og Facebook síðu félagsins: Félag eldri borgara í Skagafirði.
Skýrslur ferðanefndar:
FRÁ FERÐANEFND FÉLAGS ELDRI BORGARA Í SKAGAFIRÐI
SKUGGA – SVEINN LEIKHÚSFERÐ 25. MARS 2022
Lagt var af stað frá N einum á Sauðárkróki klukkan 15:30; og nú skyldi haldið til samfundar við ,,Skugga – Svein“ í Samkomuhúsinu hjá Leikfélagi Akureyrar. Alls voru fjörutíu og tveir þátttakendur í ferðinni, tveir óku í einkabíl en hinir með rútu á vegum Gísla Rúnars. Veður var leiðinlegt á leiðinni; og áttu rúðuþurrkurnar fullt í fangi með að standa sig. Þegar til Akureyrar kom var farið á veitingastaðinn Rub 23 í Listagilinu, þar sem við snæddum dýrindis grillað lambakjöt og á eftir því súkkulaðiköku með kaffi. Eftir að hafa kýlt vömbina, var haldið inn í Samkomuhúsið til fundar við Sveinka. Þetta var dálítið öðru vísi útfærsla á leikritinu en maður sá áður. En gaman var að sjá þessa sýningu; og ég held, að allir hafi verið sáttir við þessa langþráðu leikhúsferð.
Þórey Helgadóttir (sign.) ritari
HÚSAVÍKUR – OG ÞEISTAREYKJAFERÐ 14. JÚNÍ 2022
Heldur hafði fækkað í hópferðinni frá því sem pantað var, því að þátttakendur urðu aðeins 43. Covid og fleiri ástæður voru fyrir því.
Lagt var af stað frá N- einum á Krók kl. 9 og frá Varmahlíð kl. 9:30. Guðmundur Sigurbjörnsson ók og rúmt var um okkur í 55 manna bíl. Áð var í smástund á Glerártorgi, en síðan ekið rakleitt til Húsavíkur. Þar fengum við ágætis fiskisúpu á veitingastaðnum Sölku, sem er í gamla kaupfélagshúsinu.
Tryggvi bóndi á Þverá í Reykjahverfi er mjög kunnugur á Þeistareykjaslóðum, en þangað var förinni heitið eftir súpuátið. Fékk ég hann sem leiðsögumann, en hann kom til móts við okkur á Húsavík. Veðrið var gott og við stoppuðum dálitla stund við gangnamannakofann á Þeistareykjum, en virkjunina gátum við ekki fengið að skoða, þurfti að panta það með viku fyrirvara og við nenntum ekki að bíða eftir því.
Við höfðum rúman tíma þegar við komum aftur til Húsavíkur. Sumir fóru á bæjarrölt, aðrir í Hvalasafnið. En svo var bara slappað af á Gamla- Bauk, setið þar úti í sól og blíðu. Um fimm leytið héldum við af stað. Fórum nú upp Aðaldal og Reykjadal, yfir Fljótsheiði og Víkurskarð.
Við áttum pantaðan mat á veitingastaðnum Vitanum á Akureyri og höfðum nægan tíma, svo að ég ákvað að við færum Laugalands- og Hrafnagilshringinn, sem mínum gamla sveitunga Birni Björnssyni (Bangsa) fannst nú ekki slæmt. En hann var búinn að segja okkur margt skemmtilegt í ferðinni. Til Akureyrar vorum við komin laust fyrir klukkan sjö, þar sem kvöldverður beið okkar á Vitanum við Strandgötu.
Eftir að hafa kýlt vömbina var haldið heimleiðis eftir vel heppnaða ferð.
Þórey Jónsdóttir (sign.) ritari
Breyting á stjórn FEBS
Breyting varð á stjórn FEBS fyrir starfsárið 2022 – 2023 þar sem Guðmundur Gunnarsson, meðstjórnandi, lést 11. maí s.l. Er Guðmundi þakkað af alhug hans fjölbreyttu störf í þágu félagsins til margra ára. Fyrsti varamaður í stjórn er Ásta Sigurbjörnsdóttir og gengur hún því upp í meðstjórnanda til næstu tveggja ára, sem var kjörtímabil Guðmundar. Á stjórnarfundi þann 27. ágúst 2022 var stjórnin sammála um að óska eftir því við Stefaníu Stefánsdóttur að hún tæki sæti sem varamaður í stjórn félagsins til eins árs og varð hún við því og er boðin velkomin til starfa.