Skýrslur ferðanefndar:
FRÁ FERÐANEFND FÉLAGS ELDRI BORGARA Í SKAGAFIRÐI
SKUGGA – SVEINN LEIKHÚSFERÐ 25. MARS 2022
Lagt var af stað frá N einum á Sauðárkróki klukkan 15:30; og nú skyldi haldið til samfundar við ,,Skugga – Svein“ í Samkomuhúsinu hjá Leikfélagi Akureyrar. Alls voru fjörutíu og tveir þátttakendur í ferðinni, tveir óku í einkabíl en hinir með rútu á vegum Gísla Rúnars. Veður var leiðinlegt á leiðinni; og áttu rúðuþurrkurnar fullt í fangi með að standa sig. Þegar til Akureyrar kom var farið á veitingastaðinn Rub 23 í Listagilinu, þar sem við snæddum dýrindis grillað lambakjöt og á eftir því súkkulaðiköku með kaffi. Eftir að hafa kýlt vömbina, var haldið inn í Samkomuhúsið til fundar við Sveinka. Þetta var dálítið öðru vísi útfærsla á leikritinu en maður sá áður. En gaman var að sjá þessa sýningu; og ég held, að allir hafi verið sáttir við þessa langþráðu leikhúsferð.
Þórey Helgadóttir (sign.) ritari
HÚSAVÍKUR – OG ÞEISTAREYKJAFERÐ 14. JÚNÍ 2022
Heldur hafði fækkað í hópferðinni frá því sem pantað var, því að þátttakendur urðu aðeins 43. Covid og fleiri ástæður voru fyrir því.
Lagt var af stað frá N- einum á Krók kl. 9 og frá Varmahlíð kl. 9:30. Guðmundur Sigurbjörnsson ók og rúmt var um okkur í 55 manna bíl. Áð var í smástund á Glerártorgi, en síðan ekið rakleitt til Húsavíkur. Þar fengum við ágætis fiskisúpu á veitingastaðnum Sölku, sem er í gamla kaupfélagshúsinu.
Tryggvi bóndi á Þverá í Reykjahverfi er mjög kunnugur á Þeistareykjaslóðum, en þangað var förinni heitið eftir súpuátið. Fékk ég hann sem leiðsögumann, en hann kom til móts við okkur á Húsavík. Veðrið var gott og við stoppuðum dálitla stund við gangnamannakofann á Þeistareykjum, en virkjunina gátum við ekki fengið að skoða, þurfti að panta það með viku fyrirvara og við nenntum ekki að bíða eftir því.
Við höfðum rúman tíma þegar við komum aftur til Húsavíkur. Sumir fóru á bæjarrölt, aðrir í Hvalasafnið. En svo var bara slappað af á Gamla- Bauk, setið þar úti í sól og blíðu. Um fimm leytið héldum við af stað. Fórum nú upp Aðaldal og Reykjadal, yfir Fljótsheiði og Víkurskarð.
Við áttum pantaðan mat á veitingastaðnum Vitanum á Akureyri og höfðum nægan tíma, svo að ég ákvað að við færum Laugalands- og Hrafnagilshringinn, sem mínum gamla sveitunga Birni Björnssyni (Bangsa) fannst nú ekki slæmt. En hann var búinn að segja okkur margt skemmtilegt í ferðinni. Til Akureyrar vorum við komin laust fyrir klukkan sjö, þar sem kvöldverður beið okkar á Vitanum við Strandgötu.
Eftir að hafa kýlt vömbina var haldið heimleiðis eftir vel heppnaða ferð.
Þórey Jónsdóttir (sign.) ritari
Breyting á stjórn FEBS
Breyting varð á stjórn FEBS fyrir starfsárið 2022 – 2023 þar sem Guðmundur Gunnarsson, meðstjórnandi, lést 11. maí s.l. Er Guðmundi þakkað af alhug hans fjölbreyttu störf í þágu félagsins til margra ára. Fyrsti varamaður í stjórn er Ásta Sigurbjörnsdóttir og gengur hún því upp í meðstjórnanda til næstu tveggja ára, sem var kjörtímabil Guðmundar. Á stjórnarfundi þann 27. ágúst 2022 var stjórnin sammála um að óska eftir því við Stefaníu Stefánsdóttur að hún tæki sæti sem varamaður í stjórn félagsins til eins árs og varð hún við því og er boðin velkomin til starfa.
Óvissuferð 2022
Félag eldri borgara í Skagafirði efnir til eins dags óvissuferðar í austurveg. Staðkunnugur leiðsögumaður verður með í för á áfangasvæðinu. Ferðin að meðtöldum léttum hádegismat, afþreyingu og kvöldverði kostar kr. 9.000 fyrir félaga, en kr. 11.000 fyrir fólk utan félags. Greiðst inn á reikning 0310 – 26 – 002105, kt. 5601983109 í Arion banka fyrir 10. júní n.k.
Brottför 14. júní kl. 9:00 árdegis frá N 1 á Krók , en kl. 9 :30 frá Varmahlíð.
Pantanir hjá Þóreyju í síma 4538078 og Magnúsi í s. 4535368 og s. 8684068 til og með 8. júní n.k.
Ferðanefndin
Haustferð Félags eldri borgara í Skagafirði 23.09.2021
Við fórum að venju af stað frá Ábæ klukkan 10. þann 23. september. Urðum að hætta við að aka Lágheiði vegna slæms færis, þannig að Siglufjarðarleiðin var farin. Stebbi Steingríms tók að sér leiðsögn til Sigló, en þar var gert smá pissustopp. Þaðan keyrðum við rakleitt til Ólafsfjarðar; og þar var hið frábæra fuglasafn skoðað. Næsti áfangi var Safnahúsið Hvoll á Dalvík, og síðan settumst við inn á veitingastaðinn Gísla Eirík og Helga, þar sem snædd var hin ágætasta fiskisúpa. Eldri borgarar á Dalvík buðu okkur að koma í sitt samkomuhús, þar sem við fengum kaffi og ágætis móttökur. Þaðan ókum við hringinn í Svarfaðardalnum með viðkomu á Völlum, en þar var enginn við í sveitarbúðinni. Nú ókum við rakleitt aftur til Ólafsfjarðar, þar sem eldri borgarar á staðnum tóku á móti okkur í aðstöðuhúsi sínu með kaffisopa. Klukkan sex komum við á Hótel Sigló og nutum þar fínasta kvöldverðar. Heim var svo haldið um átta leytið. Tókst þessi ferð að öllu leyti vel.
Þátttakendur voru fjörutíu og fjórir. Gísli Rúnar Jónsson var bílstjóri að vanda, en Birgitta Pálsdóttir leiðsögumaður ásamt Stefáni Steingrímssyni.
Læt ég hér staðar numið. Þórey Helgadóttir ritari
Tillögur stjórnar FEBS um lagabreytingar
Hér koma tillögur stjórnar FEBS um breytingu á lögum félagsins fyrir aðalfundinn 14. mars 2022 kl. 13.00. Þið tvíklikkið á linkinn hér fyrir neðan og þá birtist skjalið með lögum FEBS þar sem tillögur stjórnar um breytingu á lögunum eru skrifaðar með rauðu. Kynnið ykkur þessar tillögur vel og mætum svo sem flest á aðalfundinum.
Starfsemi fellur niður vegna Covit.
Vegna Covit fellur föndrið niður ásamt söngæfingu á morgun, miðvikudaginn 23.02.2022.
Staðan verður skoðuð að nýju í næstu viku.