Landsfundur eldri borgara, L.E.B. 30.06.2020.
Landsfundur eldri borgara, LEB, var haldinn á Hótel Sögu þ. 30.06.2020.
Fundinn sátu 123 fulltrúar.
Frá okkar FEBS sátu fundinn Kristín Bjarney Sveinsdóttir og Kristín Björg Helgadóttir.
Alþingi felldi þá tillögu að eldri borgarar fylgi launaþróun í landinu og voru það mikil vonbrigði með forustu launasamtaka.
Félag eldri borgara í Rangárvallasýslu íhugar vantraust og jafnvel úrsögn úr LEB vegna baráttuleysis í launabaráttunni og segja að 220 þúsund útborguð laun sé vansæmd fyrir íslenska þjóð og styrkur til Gráa hersins sé alltof lágur. Fundurinn samþykkti algjöra samstöðu með Gráa hernum og baráttu félagsins og málsókn hans gagnvart ríkinu.
Grái herinn berst fyrir mannsæmandi kjörum og virðingu allra og berst á móti skerðingu lífeyris og heimilisuppbótar.
Reykjavíkurdeildin segir að Framkvæmdmasjóður aldraðra verði að berjast fyrir hækkun á lágum launum EB. Það þarf að líta á EB sem baráttuhóp. Fram kom að 45.000 eldri borgarar eru í landinu og 28.000 þeirra eru í félögum. Samstaða þessa hóps er mjög mikilvæg.
Það þarf að opna umræðu um ofbeldi gagnvart öldruðum í þjóðfélaginu, bæði líkamlegu og fjárhagslegu. Rætt var um að aldraðir fái réttargæslumann.
Fyrirlestrar í lokin voru frá Janusi, „heilsugúru“, þeir gerðu mikla lukku enda frábærar styrktaræfingar og hreyfiæfingar, lyfta og ganga !!!
„Þríeykinu“ þakkað fyrir að hugsa vel um aldraða og klappað fyrir þeim.
Í september er fyrirhuguð ráðstefna um einmanaleika og félagslega einangrun aldraðra, einnig baráttufundur með sveitarfélögum.
Kristín Björg Helgadóttir
Félagsstarf Félags eldri borgara í Skagafirði haustið 2020.
Í ljósi aðstæðna verður dagskrá fyrir félagsstarf eldri borgara í Skagafirði ekki gefin út að sinni. Hlökkum til endurfunda við betri aðstæður. Við erum öll almannavarnir. Stjórnin
Félagsstarf eldri borgara í maí.
Nú þegar kórónufaraldurinn er að syngja sitt síðasta (vonandi) ætlum við að bjóða upp á ,,hitting“ í bingó, spjalli, kaffi og með því mánudagana 11., 18. og 25. maí í Húsi frítímans. Vegna tilmæla um að halda tvo metra milli einstaklinga gengur ekki upp að bjóða uppá brids né félagsvist. Föndurfólk getur sótt sína muni 11. maí. Minnum á göngu á íþróttavellinum alla mánudaga og fimmtudaga kl. 9:00 og 13:00 með kaffisopa og spjalli í Vallarskúrnum eftir gönguna. Sjáumst sem flest!
Dagskrá eldri borgara í Skagafirði vorið 2020
FÉLAG ELDRI BORGARA:
SAMKOMUR Í HÚSI FRÍTÍMANS TIL VORS 2020.
HEFJAST kl.13.00
JANÚAR:
6. mánudagur – félagsvist
9. fimmtudagur – spiladagur
13. mánudagur – bingó
16. fimmtudagur – spiladagur
20. mánudagur – félagsvist
23. fimmtudagur – spiladagur
27. mánudagur – bingó
30. fimmtudagur – spiladagur
FEBRÚAR:
3. mánudagur – félagsvist
6. fimmtudagur – spiladagur
10. mánudagur – bingó
13. fimmtudagur – spiladagur
17. mánudagur – félagsvist
20. fimmtudagur – spiladagur
24. mánudagur – bingó
27. fimmtudagur – spiladagur
MARS:
2. mánudagur – félagsvist
5. fimmtudagur – spiladagur
9. mánudagur – bingó
12. fimmtudagur – spiladagur
16. mánudagur – félagsvist
19. fimmtudagur – AÐALFUNDUR
23. mánudagur – bingó
26. fimmtudagur – spiladagur
30. mánudagur – félagsvist
APRÍL:
2. fimmtudagur – spiladagur
6. mánudagur – bingó
16. fimmtudagur – spiladagur
20. mánudagur – félagsvist
27. mánudagur – bingó
30. fimmtudagur – spiladagur
MAÍ:
4. mánudagur – spiladagur
7. fimmtudagur – spiladagur
11. mánudagur – spiladagur
14. fimmtudagur – spiladagur
18. mánudagur – spiladagur
21. fimmtudagur – Dagur aldraðra
25. mánudagur – spiladagur
28. fimmtudagur – spiladagur
Handavinna og föndur byrjar miðvikudaginn 15.janúar.
Leikfimin byrjar 8.janúar.
F.E.B.S. sendir Skagfirðingum öllum óskir um farsæld og frið á nýbyrjuðu ári.
Jólafundur 19. desember 2019.
Jólafundur Félags eldri borgara í Skagafirði var haldinn í Ljósheimum 19. desember síðastliðinn. Þátt tóku 59 manns með gestum og fór þessi skemmtun mjög vel fram. Séra Dalla Þórðardóttir flutti ágætis hugvekju og Agnar bóndi hennar var með hátíðaræðu, en hann fór á kostum sem kom salnum í mörg hlátursköst. Geirmundur var með nikkuna og stjórnaði fjöldasöng á milli atriða. Happdrætti, með þremur vinningum sem K.S. gaf, gerði lukku. Þrír ungir nemendur Tónlistarskólans komu og spiluðu fyrir okkur jólalög undir stjórn Rögnvaldar. Með Geirmundi var sonardóttir hans og söng hún fyrir okkur nokkur lög. Að síðustu var boðið upp á dans með Geirmundi. Veislustjóri var Stefán Steingrímsson.
Ferð um Húnaþing 22. ágúst 2019
Ferðanefnd Félags eldri borgara í Skagafirði stóð fyrir óvissuferð um Húnaþing fimmtudaginn 22. ágúst. Lagt var af stað frá N einum á Sauðárkróki klukkan níu að morgni dags og ekið að Hótel Varmahlíð í fyrsta áfanga, en Gísli Rúnar Jónsson var bílstjóri í ferðinni. Farþegar tíndust inn í rútuna á allri þessari leið.
Síðan keyrðum við um um Stóra-Vatnsskarð Víðivörðuás Ævarsskarð og Langadal út á Blönduós. Reyndi undirritaður með hjálp hátalarans að tína einstöku fróðleiksmola í förunautana á þessari leið. Fyrstu áningastaðir ferðarinnar voru Heimilisiðnaðarsafnið og Kvennaskólinn á Blönduósi. Elín Sigurðardóttir á Torfalæk veitti okkur leiðsögn um Heimilisiðnaðarsafnið og Jóhanna Pálmadóttir frá Akri sýndi og sagði okkur frá Vatnsdælureflinum, sem er hörstrangi einn mikill varðveittur í Kvennaskólanum. Í hann eru saumaðar listilega útfærðar myndir, er segja sögu Vatnsdælu. Hafa margir komið að því verki. Talsvert vantar þó á að saumaskapnum sé lokið, en stöðugt er unnið að honum.
Við hefðum getað dvalið miklu lengur bæði á safninu og í skólanum, sökum þess að margt var að sjá og skoða og leiðsögnin frábær. En nú birtist Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum flestum að óvöru eins og vera ber í óvissuferð. Hann varð síðan leiðsögumaður okkar um nokkra valda staði í Húnavatnsþingi.
Fyrst var ekið frá Blönduósi um Útása eftir Þjóðvegi eitt að Þrístöpum í Þingi. Þægilegur malbikaður stígur er frá þjóðveginum að stöpunum, þar sem síðustu aftökurnar á Íslandi fóru fram árið 1829. Stillti leiðsögumaður okkar sér upp nálægt þeim stað, þar sem öxin féll á sínum tíma og raðaði okkur ferðalöngunum í kringum sig, meðan hann lýsti þessum átakanlega atburði. Sama gerði Björn Blöndal sýslumaður í Hvammi í Vatnsdal 190 árum fyrr, er hann boðaði ákveðin hóp búandfólks í Húnaþingi að vera viðstaddan aftökurnar.
,,Komdu nær Jóhann, svo að þú sjáir betur,“ á sýslumaður að hafa sagt.
En Jóhann þessi iðulega kenndur við Holtastaði í Langadal var um sína ævi riðinn við ýmis glæpamál í Húnaþingi. (Sjá nánar: Saga Natans Ketilssonar og Skáld-Rósu e. Brynjúlf Jónsson frá Minna-Núpi, Sæmundur 2017; Náðarstund e. Hannah Kent, JPV útgáfan 2014).
Frá Þrístöpum keyrðum við austan Víðidalsár að ferðaþjónustubænum Dæli í Víðidal, þar sem við borðuðum hádegismat, súpu og brauð, og drukkum kaffi á eftir. Kærkomið var að að rétta úr sér og spranga um úti í skjóli útveggjar veitingasalarins og limgerðis umhverfis lítinn skeiðvöll. Frá Dæli var haldið að Kolugljúfrum framar í dalnum og fossarnir mikilfenglegu í þeim barðir augum og margar myndir teknar. Er öll aðstaða þar til fyrirmyndar með útsýnispöllum og stígum.
Farin var stysta leið frá Kolugljúfrum inn á Þjóðveg eitt og ekið vestan Víðidalsár fram hjá Víðihlíð og áfram að Þingeyrum. Þar var áð allnokkra stund og litið inn í steinkirkjuna gömlu, sem Ásgeir Einarsson frá Kollafjarðarnesi stórbóndi og alþingismaður lét reisa um sína daga. Ung stúlka úr sveitinni leiðsagði okkur um kirkjuna, sem er hreint listaverk jafnt utan sem innan. Margir gengu og um kirkjugarðinn, kunnu nokkur deili á þeim, sem hvíldi undir leiðunum, og höfðu jafnvel þekkt suma í lifanda lífi.
Á Þingeyrum er einnig þjónustumiðstöð í nýjum stíl, en hún kallast samt á við steinkirkjuna gömlu á einkar smekklegan og viðfeldinn hátt. Í henni má finna mikinn fróðleik um Þingeyrar sem klausturstað og valdsmannssetur og jafnframt eru þar snyrtingar, er allra síst skyldi vanmeta á stöðum sem þessum.
Þingeyrar eru ekki einasta mikil og góð bújörð; þær eru jafnframt ríkar af hlunnindum. Munar þar mestu um laxinn. Segir sagan, að hundarnir á bænum hafi hlaupið ýlfrandi út fyrir túngarð, ef þeir fundu lykt af soðnum laxi. Raunar hefur saga þessi verið heimfærð upp á ýmsar aðrar laxveiðijarðir eins og gengur.
Eftir að hafa notið víðsýnis á Þingeyrum um hríð, var næsti áfangi Þórdísarlundur í Vatnsdal og gerður þar nokkur stans fyrir spjall og hreyfingu. Að svo búnu var ekið fram Vatnsdal að vestan og út dalinn að austanverðu eins og hefðin býður.
Næsti og jafnframt síðasti áfangi fararinnar var Ömmu-Kaffi á Blönduósi. Við gæddum okkur þar vöfflum með þeyttum rjóma og aldinmauki. Starfsfólkið þar hefði mátt vera ögn betur undir komu okkar búið en raun bar vitni, enda var afgreiðslan frekar sein, en starfsfólkið var samt allt að vilja gert, eftir að á hólminn var komið.
Við kvöddum Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum, leiðsögumanninn okkar, þarna á hlaðinu við Ömmu-Kaffi. Hann var að flýta sér; átti brýn erindi til Reykjavíkur næsta dag. Þessi för hefði varla orðið nema svipur hjá sjón, ef hans hefði ekki notið við. Hann fræddi okkur um svo ótal margt úr sveitum þessum og tíndi í okkur mýmörg gullkorn.
Ferðin heim lá um Langadal, Ævarsskarð, Víðivörðuás, Stóra-Vatnsskarð Varmahlíð og Sauðárkrók, þaðan sem við komum um morguninn. Frá Varmahlíð og út á Krók tíndust farþegarnir úr rútunni.
Við vorum 43 farþegar í rútunni
Sauðárkróki 17.10. 2019
Magnús Óskarsson