Ferð um fram-Eyjafjörð 12. júní 2019
FERÐ UM FRAM-EYJAFJÖRÐ
Ferðanefnd Félags eldri borgara í Skagafirði efndi til kynnisferðar um framsveitir Eyjafjarðar miðvikudaginn 12. júní síðast liðinn. Lagt var af stað frá N einum á Sauðárkróki klukkan níu árdegis. Gísli Rúnar Jónsson sat undir stýri og Þórey Helgadóttir Tunguhálsi II stjórnaði ferðinni og kynnti það, sem fyrir augu bar af mikilli röggsemi í hljóðnemann. Farþegar tíndust inn í rútuna á Sauðárkróki, í Lyngholti, Stekkholti, Varmahlíð og á Uppsölum. Alls urðu 39 manns með í för.
Eftir að hópurinn kom til Eyjafjarðar, var fyrst áð á Glerártorgi við Akureyri, þar sem fólki gafst kostur á að rétta ögn úr sér og létta á sér. Síðan ók rútan með mannskapinn að bænum Garði í Staðarbyggð austan Eyjafjarðarár, en veitingastaðurinn Kaffi Kú er í fjósinu á þeim bæ. Gestgjafinn Einar Aðalsteinsson ávarpaði hópinn. Hann lýsti því, hvernig er að vera kýr í stóru nýtísku hátækni lausagöngufjósi með mjaltaþjóni. Mér virtist Einar hafa lög að mæla; kýrnar í Garði voru feitar hreinar og rólegar, svo að þeim hlýtur að líða vel.
Eftir skelegga ræðu gestgjafans um kúabúskap og horfur í honum bauðst langsoltnum ferðalöngum loks að bragða á nautakjötssúpu með grænmeti í. Með henni var borið heimabakað brauð og heimastrokkað smér, ef mér skjátlast ekki. Einnig vöknuðu hjá mér grunsemdir um, að mjólkin sem ég drakk hafi verið óskilin beint úr kælinum án viðkomu í samlagi. Hún var í það minnsta afar þykk og góð eins og allur rjómi væri ekki úr henni.
Þegar allir höfðu fengið nægju sína á Kaffi Kú, ókum við fram að Möðruvöllum og þaðan vestur yfir Eyjafjarðará og áfram inn dalinn vestan verðan fram hjá Leynishólum. Þar beygðum við austur yfir ána gegnt bænum Vatnsenda og svo út að austan undir Hólafjalli, sem er langt og mikilúðlegt, og aftur vestur yfir hana á móts við Sandhóla. Þórey upplýsti, að þessi leið kallaðist Litli hringurinn.
Við héldum nú út Eyjafjarðarsveit vestan ár, að bænum Holtsseli, þar sem við fengum okkur heimagerðan ís, mjög bragðgóðan. Ísbúð og veitingastaður eru í risinu á fjóshlöðunni. Við sátum ofan við fjósið á bekkjum í skjóli trjánna og sleiktum ísinn í blíðunni. Þarna voru líka endur og hænsn á vappi, en gaman var að fylgjast með uppátækjum fuglanna. Þetta var sannkallaður Edensreitur.
Næsti áfangastaður var höfuðbólið og stórbýlið Grund í Eyjafirði. Við skoðuðum Grundarkirkju, sem er bæði mikið guðshús og fagurt, jafnt utan sem innan. Sveinbjörg Helgadóttir systir Þóreyjar sagði okkur frá kirkjunni.
Lokaáfangi ferðarinnar var Kristnes – áður berklahæli en núna endurhæfingarmiðstöð fyrir fólk, sem er að ná sér eftir veikindi. María Pálsdóttir fréttamaður á N fjórum vinnur þar að því að breyta fyrrum starfsmannahúsi í veitingastað og safn um baráttuna gegn berklum á Íslandi. María flutti tilþrifamikið ávarp, enda leikkona að mennt, yfir okkur gamlingjunum – nokkurs konar ágrip af sögu berkla á Íslandi og um fyrirætlanir sínar á staðnum. Síðan drukkum við kaffi og borðuðum köku með þeyttum rjóma. Áhugavert verður að koma aftur að Kristnesi, þegar María hefur hrundið áfornum sínum í framkvæmd, og skoða útfærslur hennar á safninu.
Formlegri dagskrá ferðarinnar um innsveitir Eyjafjarðar lauk með heimsókninni að Kristnesi. Þegar við ókum fram hjá brúnni austur yfir mynni Eyjafjarðarár var hringnum lokað. Þá höfðum við bæði ekið stóran hring og lítinn hring í fram-firðinum í einmuna blíðu. Að svo búnu héldum við heim í Skagafjörð og Gísli Rúnar skilaði farþegum á þá staði, þar sem þeir höfðu komið inn í rútuna um morguninn.
Ég skemmti mér konunglega í ferðinni, og ég vona að förunautar mínir hafi gert slíkt hið sama. Ég þakka hinum í ferðanefndinni þeim Símoni Traustasyni í Ketu og Þóreyju Helgadóttur á Tunguhálsi II og Kristínu Sveinsdóttur gott samstarf og Gísla Rúnari öruggan akstur.
19.06. 2019
Magnús Óskarsson
frá Sölvanesi
Dagskrá Félags eldri borgara í Skagafirði haustið 2019
Hér má sjá dagskrá okkar fyrir haustið 2019. Einnig hefur þessi dagskrá verið færð inn á flipann “dagskrá” sem hægt er að finna ef músin er færð
yfir “starfið” hér efst á síðunni.
FÉLAG ELDRI BORGARA
SKAGAFIRÐI
Samkomur eldri borgara til áramóta 2019
í Húsi frítímans – hefjast kl. 13.00
Október
7. mánudagur – félagsvist
10. fimmtudagur – spil
14. mánudagur – bingó
17. fimmtudagur – haustfundur – spil
21. mánudagur – félagsvist
24. fimmtudagur – spil
28. mánudagur – bingó
31. fimmtudagur – spil
Nóvember
4. mánudagur – félagsvist
7. fimmtudagur – spil
11. mánudagur – bingó
14. fimmtudagur – spil
18. mánudagur – félagsvist
21. fimmtudagur – spil
25. mánudagur – bingó
28. fimmtudagur – spil
Desember
2. mánudagur – félagsvist
5. fimmtudagur – spil
9. mánudagur – bingó
12. fimmtudagur – spil
16. mánudagur – félagsvist
19. fimmtudagur – jólafundur
Ath. Bílastæði eru einnig austanmegin við Hús frítímans, keyrt inná planið sjávarmegin.
Leshópur: Miðvikudagar kl. 11:00 í Héraðsbókasafninu – Þórdís stjórnar, byrjar 26.sept. Allir velkomnir.
Leikfimi: Miðvikudagar kl. 10:00 í Húsi frítímans – Guðrún Helga þjálfar, byrjar 25.sept.
Skráið ykkur hjá Herdísi í síma 846-9301.
Boccia: Í Húsi frítímans kl. 09:00 – 12:00 á þriðjudögum og fimmtudögum.
Gönguhópurinn: Mánudagar og fimmtudagar kl 08:30. Mæting við Vallarhúsið á íþróttavellinum.
Kórinn: Æfingar í Ljósheimum á miðvikudögum kl. 15:00-17:00. Nýir félagar velkomnir. Uppýsingar veita Krummi í síma 848-8327 , Bíbí í síma 453-5352 og Dísa í síma 898-6956.
Skákæfingar: Eldri borgarar eru boðnir velkomnir á skákæfingar hjá skákfélaginu í Safnaðarheimilinu á miðvikudögum kl. 20:00.
Útskurður: Hefst 24. sept. kl. 16:00 – 18:00 í Árskóla (smíðastofu) Uppl. hjá Ástu Ragnarsd. sími 862-6167.
Samvera á Löngumýri: Helga og Sigríður Garðars. bjóða til samveru þriðjudagana 8.og 22.október, 5. og 19. nóvember og og litlu jól 4. desember.
Byrjum að vanda kl. 13.30.
Handavinna og föndur í Húsi frítímans – byrjar miðvikudaginn 25.september kl.12:00-15:00. Jóna og Helga taka vel á móti ykkur.
Matur á Kaffi-Krók:
Alla virka daga í hádeginu 12:30-13:30
Hlaðborð 1500 kr
Súpa og salat 1000 kr.
Matur á Hard-Wok Cafe:
15% af heildar reikningi. Auka 10% af tilboðum.
Heimavist FNV: Hádegishlaðborð virka daga 1000 kr.
Dagdvöl Aldraðra:
Dagdvöl í Skagafirði er ætluð öldruðum einstaklingum og er markmið hennar að bjóða upp á þjónustu sem auðveldar fólki að búa sem lengst á eigin heimili, þrátt fyrir hækkandi aldur og skerta færni. Upplýsingar veitir Stefanía Sif Traustadóttir sími 453-5909 GSM 692-5909.
Geymið auglýsinguna:
Fréttir af aðalfundi F.E.B.S. 29.04.2019
Aðalfundur F.E.B.S. 29.04.2019
Heil og sæl félagar góðir og verið hjartanlega velkomin á aðalfund félagsins fyrir starfsárið 2018- 2019. Við fundum óvenju seint þetta árið en það á sínar skýringar. Til fundarins hefur löglega verið boðað – fundarstjórn tekur að sér Guðmundur Gunnarsson og ritun fundar Guðmundur Óli Pálsson.
Góðir félagar! Í byrjun minnumst við – með virðingu og þökk látinna félaga.
Viðstadda bið ég að rísa á fætur og votta virðingu:
Að venju hóf félagið vetrarstarfið formlega á haustfundinum. Lagt var upp með svipaða dagskrá og verið hefur undanfarin ár, þ.e.a.s. spilin, bingóið,skákina,leshringinn,leikfimina,gönguna, handavinnuna – svo fátt eitt sé talið. Gunnar Rögnvaldsson og Helga Bjarnadóttir bjóða eldri borgurum til samverustunda á Löngumýri og spilahópur kemur saman á Hofsósi. Það fækkar enn í spilunum hjá okkur en fjölgar í handavinnu-boccia- og lekfimihópnum. Guðrún Helga stjórnar leikfiminni. Leiðbeinendur í handavinnuhópnum eru þær Jóna Heiðdals og Helga Hjálmarsdóttir, Þórdís Friðbjörnsdóttir leiðir leshópinn og eru þeim öllum færðar bestu þakkir.
Erfitt hefur reynst stjórn að brydda upp á nýjum afþreyingarmöguleikum, kemur þar margt til, en takmarkaður húsnæðisaðgangur stendur þróun starfsins verulega fyrir þrifum. Rekstur félagsins stendur í járnum eins og gjaldkeri mun gera grein fyrir, þ.a. við getum ekki lagt í mikinn kostnað hvað varðar kennslu- og leiðbeinendastörf. Svo verðið þið félagar góðir að sýna áhuga og frumkvæði til breytinga og bóta.
Eðlilega koma nýjar áherslur og þarfir með nýju og yngra fólki – alltaf er jákvætt að breyta og bæta dagskrá að þörfum þeirra sem afþreyinguna sækja.
Að vissu leiti hefur þetta verið erfiður vetur. Spilin byrjuðu óformlega í byrjun september á s.l. hausti. Aðkoman í húsinu var bágborin, svo ekki sé meira sagt. Ekki var hægt að hella á könnu fyrr en eftir þvott og burstun tækja og tóla. Stjórn féllust hendur, umgengni um eignarhlut okkar í húsinu sem er eins og þið vitið innbú, stólar, borð, eldhústæki- og tól, borðbúnaður og fl. er engum til sóma.
Þegar leið að formlegri starfsemi var enga aðstoð að fá hjá starfsfólki frítímahússins og var okkur sagt að þeim kæmi okkar starfsemi ekkert við. Kom þetta stjórn á óvart, því samstarf og samvinna hafði gengið vel til þessa. Fyrrverandi formanni Ingu Valdísi kom þessi framkoma mjög á óvart, því í hennar stjórnartíð var handsalað heiðursmannasamkomulag um þjónustuþátt sveitarfélagsins gagnvart eldri borgurum í frítímahúsinu, þar sem tekið var fram að á spiladögum skyldi starfsmaður hússins sjá um að reiða fram kaffi og pantað meðlæti. Því miður var ekki undirskrifaður – ritaður samningur, svo ekki var hægt að vitna í skrifuð orð. Þótti stjórn að sér vegið og óskaði eftir fundi með sveitarstjóra, sviðsstjóra og þeim öðrum sem um þessi mál fjalla innan sveitarfélagsins.
Fundur var síðan boðaður 5.nóv.s.l. með sveitarstjóra og yfirmönnum okkar málaflokks innan kerfisins. Stjórn mætti og Inga Valdís var svo vinsamleg að mæta og gerði hún grein fyrir upphaflegum samningum við félagið. Stjórn lagði fram nokkrar spurningar varðandi lögbundnar skyldur sveitarfélagsins og starfsmannamál. Vinsamlegar umræður – ákv. að útbúa samningsdrög til samþykktar um áframhaldandi starfsemi og þjónustu í frítímahúsinu. Allt er þetta fært til bókar í fundargerðarbók félagsins. 18.janúar bárust síðan drög að samningi sveitarfélagsins og F.E.B.S. til umsagnar og var stjórn beðin að yfirlíta og lagfæra. Stjórn var sammála um – að ekki væri hægt að svara þessari málaleitan bréflega og tilkynnti það formlega. Í stuttu máli fannst stjórn að félaginu vegið og visst upplýsingaleysi í gangi varðandi starfsemi félagsins. Fundur var síðan boðaður 4.mars – hversu lengi fundarboðið dróst var engum um að kenna nema formanni F.E.B.S. sem var fjarverandi í febrúar og vildi sitja fundinn. Samningsdrögin voru rædd og sett að mestu í bið. Starfsmannamálin í frítímahúsinu vegna þjónustu við eldri borgara veltust fyrir fundarmönnum og sýndist sitt hverjum. Mönnun Húss frítímans í dag miðast við þjónustu til annarra en eldri borgara – menntunarstig starfsfólksins miðast við annan og yngri aldursflokk. Þótti stjórn heldur talað niður til sín. Niðurstaðan var sú – að starfsfólk er til taks á spiladögum og skal sjá um kaffi en alls ekki bera fram veitingar. Frá 7.mars hefur hópurinn fengið aðstoð með kaffið en félagar séð um meðlætið. A.ö.l. eru samningsdrögin í biðstöðu – en vonandi verður allt komið í ljúfa lausn fyrir næsta starfsár. Formaður sem nú lætur af störfum hefur velt því fyrir sér – hvort ekki sé ástæða til – að framansögðu að huga að öðrum húsnæðislausnum. Ekki hefur stjórn enn fengið formlega tilkynningu um stofnun öldungaráðs innan sveitarfélagsins og því síður verið beðin að tilnefna fulltrúa. Eldri borgurum er ekki sýnd sú virðing og réttlæting sem þeir eiga skilið. Fyrir ári síðan í pistli formanns var tekið fram gott samstarf, velvilji og virðing í samskiptum við yfirmenn málaflokksins og starfsfólk frítímahúss, því miður er ekki hægt að endurtaka þau orð nú nema að hluta. Megas syngur ,,Lengi má manninn reyna“ og á það vel við nú.
Nú snúum við blaðinu við og tilkynnum eitthvað skemmtilegt. Útskurðarhópurinn hefur fengið aðstöðu í smíðastofu Árskóla og kemur þar saman á þriðjudögum kl.16-18. Steinunn hefur lyklavöldin og kallar liðið saman.
Á haustdögum heimsótti okkur Aðalbjörg Sigfúsdóttir og færði okkur gjöf frá ,,Lífið er núna“ dagsbirtuljós sem gott er að láta skína í skammdeginu.
Kristján formaður golfklúbbsins segir eldri borgara velkomna í golfherminn, endilega nýtið ykkur það.
Félagið keypti nýjar kúlur fyrir boccia-hópinn – og – endilega kastið kúlunum.
Kórfélagar syngja sem aldrei fyrr, þið fáið fréttir frá þeim á eftir.
Heimasíðan er í traustum höndum Ástu Ragnarsdóttur og þökkum við hennar störf. Verið endilega dugleg að senda myndir og fréttapistla til Ástu.
Formaður og gjaldkeri sátu landsfund L.E.B. 10.og 11.apríl s.l. Var fundurinn haldinn í Ársölum – húsakynnum F.E.B. í Reykjavík að Stangarhyl 4, björt og falleg húsakynni – þar fer fram fjölbreytt starfsemi 6 daga vikunnar. Á miðvikudeginum var landsfundurinn sjálfur með formlegri dagskrá. Þórunn formaður setti fund, síðan ávarpaði forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir fundargesti – orð hennar snérust mest um þriðja orkupakkann. Síðan ávarpaði fundargesti borgarfulltrúi – Heiða Björk Hilmisdóttir og fræddi okkur um ágæti velferðarsviðs borgarinnar, eftir orðum hennar að dæma er ekki fjársvelti innan þess sviðs. Síðan voru hefðbundin aðalfundarstörf, fundarstjórar Magnús Norðdal og Dagbjört Höskuldsdóttir. Var Magnús sérlega röggsamur og góður fundarstjóri. Fundarritarar Hallgrímur Gíslason og Sesselja Eiríksdóttir. Stjórn F.E.B.S. hvetur ykkur að fara á heimasíðu LEB og kynna ykkur málefni fundarins. Þórunn Sveinbjörnsdóttir var endurkjörin formaður til 2ja ára.
Ný og breytt lög LEB voru kynnt þar sem m.a. segir í 4.gr. 4.2. Landsfundur kemur saman ár hvert, að vori til, samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar LEB.
4.3. Stjórn LEB skal boða landsfund skriflega til aðildarfélaga og á heimasíðu sambandsins með minnst 6 vikna fyrirvara.
Stjórn hafði auglýst aðalfund félags okkar einmitt 11. apríl, þ.v. var fundardegi breytt.
Ályktanir frá kjaramálanefnd og heilbrigðis- og velferðarnefnd voru samþykktar.
Samþykkt var að hækka gjald aðildarfélaga til LEB úr 600 í kr.700./ per.félaga.
Um kvöldið var hátíðamatur á Nauthól, LEB fagnar 30 árum á þessu ári og af því tilefni borgaði sambandið helming matargjaldsins fyrir fulltrúa þingsins.
Á fimmtudeginum var síðan fræðsludagskrá.
Fyrstur talaði Arnar Guðmundur Ólafsson og kynnti fundarmönnum velferðartækni og nýjustu áskoranir, en við erum mörgum árum á eftir hinum Norðurlöndunum að innleiða velferðartækni. Skoða þarf sérstaklega stöðu þeirra sem búa við einangrun og einmanaleika og leita leiða til að rjúfa einangrun þessa fólks. M.a. felur velferðartækni í sér: Skolsalerni,ryksugurobota,tröppuaðstoð,lyftustóla,hreyfiþjálfunaræfingar á spjaldtölvum, lyfjaskammtara,skjáheimsóknir,raflása,stafrænar dagbækur og samskipti svo fátt eitt sé nefnt.
Næst flutti Guðrún Ágústsdóttir fyrrverandi formaður öldrunarráðs Reykjavíkur erindi um einmanaleikann – hvað er til ráða. Í upphafi máls síns vitnaði hún til Bretlands en þar hefur verið stofnað sérstakt ráðuneyti einmanaleikans og í Danmörku er rætt um stofnun ráðherraembættis eldri borgara – það er víðar en í okkar landi sem eldri borgararar eru settir út fyrir ramma hins almenna borgara. Einmanaleiki meðal eldra fólks er algengt fyrirbrigði – hvað því veldur er bæði skortur á tengslum og umönnun ástvina, og svo velja sumir að vera einir og eru hamingjusamir. Eftir því sem byggðirnar eru stærri og fjölmennari því meira ber á einangrun. Guðrún vill breyta umræðunni og ræða hvernig hægt er að auka hamingjuna – hver og einn verður að finna leið til þess, en það getur verið erfitt þegar sífellt þarf að kljást við kerfið, en túlkun laga og réttlætis er túlkuð á margan og mismunandi hátt hjá ráðamönnum. Í lokin minntist hún á ógnina – sem sumir sjá í fjölgun eldri borgara og líkti því við náttúruvá; ,,Öldruðum fjölgar- og jöklarnir bráðna“ Umhugsunarvert.
Þórunn formaður, flutti tölu um tölvur og Ipad virkni. Hvernig vinnum við með félögum okkar? Fengum við til eignar – bækling þýddan úr dönsku þar sem eru einfaldar leiðbeiningar um notkun Ipad.
Ósk Sigurðardóttir frá TravAble talaði um aðgengismálin, CPS-hnappa,snjallsíma,spjaldtölvur,snjallúr og fl. ,,Be my eyes“ sýndarveruleika,skynörfun fyrir heilabilaða, samskiptarobota, heilsufarsmælingar og sitthvað fl. tengt tölvum.
Guðný H.Björnsdóttir kom frá Rauða krossinum og ræddi samstarf við eldri borgara – til hvers og hvað svo. Heimsóknarvinir,ökuvinir,hundavinir,félagsvinir,vinir fanga eftir afplánun,vinir karla í skúrnum. Prjónahópar – hvað á að gera við vöruna?
Ofgnótt af vörum sem ekki er not fyrir nálægt okkur?
Formaður sleit síðan fundi. Ég hvet ykkur til að leita ykkur fróðleiks á heimasíðu sambandsins.
Ferðanefnd félags eldri borgara í Reykjavík undir stjórn Gísla Jafetssonar, skipuleggur styttri og lengri ferðir innanlands- og utan. Allir þeir sem eru félagsbundnir í einhverju aðildarfélagi innan LEB, eru velkomnir í þessar ferðir. – Tók með auglýsingu um ferðir innanlands í sumar. Ferðirnar til Köben á aðventunni hafa alveg slegið í gegn og við erum velkomin með.
LEB blaðið á að vera komið til ykkar allra – látið stjórn vita ef svo er ekki.
Afsláttarbókin 2019 er í dreifingu, þið eigið að vera búin að fá bókina, ef ekki hafið samband við stjórn.
Ágætu félagar – nú hefur verið stiklað á stóru hvað starfsemi félagsins varðar á s.l. ári. Nóg hefur verið að gera en allt tekst með góðum vilja. Einmanaleikinn er til staðar, ég hvet ykkur til – að halda sem lengst í þá afþreyingar- og tómstundaleiki sem þið hafið vanið ykkur á, stundið það sem lengst. Komið hér í Hús frítímans og sláið á létta strengi. Eins og formaður hefur oft minnst á þá erum við ótrúlega heppin í þessu byggðarlagi hversu mörg rými við eigum fyrir eldri veika borgara. Biðlistar eru ekki langir, hvíldarinnlagnir auðveldar og dagvistun fjölmenn. Ráð við einmanaleikanum verður hver og einn að finna, en margar hjálpandi hendur eru útréttar, og margir eru þeir sem líta inn til vina sem þarfnast umhyggju og samkenndar – og eru ekkert að ræða það við Pétur og Pál. Höldum því áfram.
Ágætu félagar – nú er líklega nóg komið. Nú stíg ég úr formannsstól, eftir fjögur ár, sem verið hafa afar ánægjuleg og lærdómsrík. Skoðun mín er sú að það sé engum hollt að sitja of lengi, og þar sem við höfum ekki ótakmarkaðan tíma, finnst mér eðlilegt að hleypa nýju fólki að. Formaður hefur haft með sér úrvalsfólk í stjórn og nefndum og þakka ber þeim af heilum hug. Að telja upp nöfn þeirra allra væri allt of löng tala, en hafið heila þökk öll sem eitt. Þó geri ég undantekningu og nefni tvo – Inga Valdís forveri minn í stöðu formanns, það var ekki erfitt að taka við stjórnartaumum úr hennar hendi, allt þar á hreinu og endalaust hægt að leita til hennar. Hjartans þakkir Inga Valdís. Svo er það föðurlegur vinur Árni á Uppsölum, sem með endalausri hvatningu, réttlæti og kímni hvatti mig og styrkti í upphafi starfsins þegar á móti blés. Hjartans þakkir Árni.
Ykkur félagsmönnum öllum þakka ég góð kynni, samveru og skemmtun – höldum áfram okkar góða starfi hér í Húsinu og á öðrum vígstöðvun.
Endurtek þakklæti til allra þeirra sem í stjórn með formanni hafa setið og einnig nefndarmanna-og kvenna. Hafið heila þökk.
Býð nýja stjórn velkomna til starfa og óska þeim velfarnaðar.
Birgitta Pálsdóttir, fráfarandi formaður F.E.B.S.
Tillögur til stjórnarkjörs á aðalfundi F.E.B.S. 29.apríl 2019:
Formaður:
Helga Sigurbjörnsdóttir, Hólmagrund 13.
Varaformaður:
Stefán Steingrímsson, Hásæti 12a.
Ritari:
Kristín Helgadóttir, Suðurgötu 9.
Meðstjórnandi:
Guðmundur Gunnarsson, Eyrartúni 10.
Varamenn í stjórn:
Ásta Kristín Sigurbjörnsdóttir, Flugumýri.
Kristín Sveinsdóttir, Eskihlíð 1.
Magnús Óskarsson, Sauðármýri 3.
Skoðunarmenn reikninga:
Elín Sigurðardóttir, Sauðármýri 3.
Stefán Gestsson, Sauðármýri 3.
Varamaður: Engilráð Margrét Sigurðardóttir, Víðihlíð 35.
Íþróttanefnd:
Herdís Þórðardóttir, Laugatúni 26.
Guðmundur Gunnarsson, Eyrartúni 10.
Gunnhildur Vilhjálmsdóttir, Forsæti ?
Ferðanefnd:
Magnús Óskarsson, Sauðármýri 3.
Þórey Helgadóttir, Tunguhálsi.
Símon Traustason, Ketu
Varamaður: Kristín Sveinsdóttir Eskihlíð 1.
Þessar tillögur stjórnar voru samþykktar á aðalfundinum.
Tillaga gjaldkera Steinunnar Hjartardóttur um hækkun félagsgjalda var einnig samþykkt.
Félagsgjald verður því kr. 3.000,- fyrir næsta starfsár, gjald greiðist jan/febr. 2020.
Ný stjórn Félags eldri borgara í Skagafirði 29. apríl 2019
Aðalfundur félagsins var haldinn í Húsi frítímans 29. apríl 2019. Mjög vel var mætt og glatt á hjalla. Spilað var eftir fundinn og kaffiveitingar í boði félagsins. Að venju fóru fram kosningar í stjórn og nefndir.
Aðalstjórn:
Helga Sigurbjörnsdóttir – formaður
Stefán Steingrímsson – varaformaður
Kristín Helgadóttir – ritari
Steinunn Hjartardóttir – gjaldkeri
Guðmundur Gunnarsson – meðstjórnandi
Varamenn í stjórn:
Ásta Kristín Sigurbjörnsndóttir
Kristín Sveinsdóttir
Magnús Óskarsson
Skoðunarmenn reikninga:
Elín Sigurðardóttir
Stefán Gestsson
Til vara:
Engilráð Margrét Sigurðardóttir
Íþróttanefnd:
Herdís Þórðardóttir
Guðmundur Gunnarsson
Gunnhildur Vilhjálmsdóttir
Ferðanefnd:
Magnús Óskarsson
Þórey Helgadóttir
Símon Traustason
Til vara:
Kristín Sveinsdóttir
Aðalfundur félags eldri borgara í Skagafirði
Aðalfundur félagsins verður haldinn mánudaginn
29.apríl 2019 í Húsi frítímans og hefst kl. 13.00
Dagskrá fundar:
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál
Kaffiveitingar í boði félagsins og síðan dregið í spil.
Mætið vel og stundvíslega – gestir velkomnir.
Stjórnin
Geymið auglýsinguna
Félag eldri borgara í Skagafirði:
Takið eftir:
Fresta verður áður auglýstum aðalfundi félagsins vegna landsfundar LEB 10-11. apríl n.k. Fundurinn verður haldinn mánudaginn 29.apríl kl. 13.00 í Húsi frítímans. Dagskrá auglýst síðar. Stjórn biður félagsmenn velvirðingar á breyttum fundartíma en vonar að félagar sjái sér fært að fjölmenna og mæti tímanlega.
Geymið auglýsinguna:
Stjórnin